22.2.2022 | 00:02
Eigum við að styðja þjóðarmorð?
Úkraínsk stjórnvöld óska eftir leyfi alþjóða samfélagsins til að ráðast á eigin þegna og kúga þá til hlýðni. Þau hafa nú þegar staðið í drápum bæði í Donetsk og Luhansk. Og hefðu strádrepið fólk þar ef Rússar hefðu ekki hjálpað nágrönnum sínum.
Það er bara ein leið fyrir okkur og það er að viðurkenna sjálfstæði þessara ríkja. Aðeins það getur leitt til friðar!
Styðjum sjálfsákvörðunarrétt þjóða!
Við munum taka þátt í aðgerðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.12.2020 | 19:40
Galli í frétt.
Ágætt að sjá hvernig fjársöfnun gengur hjá báðum kosningateymum.
Hitt er ekki nógu gott að sjá þessa röngu fullyrðingu: "Trump hefur neitað að viðurkenna ósigur sinn og heldur því fram, án nokkurra sannana, að Biden hafi sigrað vegna þess að brögð hafi verið í tafli."
Margbúið að sýna yfirgripsmikil brot við meðhöndlun atkvæða. Þetta hefur komið fram í a.m.k. 2gja daga vitnaleiðslum hjá "Michigan State Senate Committee on Oversight Holds Hearing on Election Fraud"
Sumir atkvæðabunkar margtaldir - miklu fleiri atkvæði í Wayne County en skráðir kjósendur - talningavélar (Dominion) stórgallaðar og forritanlegar.
Nú virðist ljóst að Donald Trump hefur sennilega unnið með yfirburðum í Pennsylvaníu, Georgíu, Michigan, Arizona, Nevada og Wiscounsin.
Fáir fjölmiðlar ytra greina frá þessu, svo virðist sem eignarhald hinna hafi þessi þöggunaráhrif.
Ég átti ekki von á því Mbl.
26 milljarðar safnast handa Trump | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.8.2016 | 01:55
Sema Erla og skoðanakúgun
Eigandi fyrirtækis sem auglýsir hjá Útvarpi Sögu segist vera með hótunarbréf frá SES, hún virðist einnig hvetja vini síni til að senda spam póst á þessi fyrirtæki. Slíkt er skoðanakúgun.
Sema sækist eftir öðru sæti í Kraganum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.8.2013 | 18:04
"Einstakur" leikmaður
Finnst að velja hefði mátt betri lýsingu á þeim leikmönnum sem Arsene Wenger sækist eftir. Finnst blaðamaður hefði frekar á að segja yfirburða eða framúrskarandi leikmenn. Enda hefur félagið boðið í Suarez hjá Liverpool, Rooney frá Man Utd, Bale frá Tottenham og marga fleiri hágæðaleikmenn. Þetta má sjá á slóðinni "Media Watch" á Arsenal vefnum. http://www.arsenal.com/media-watch
Síðan segir hann að Arsenal sé í viðræðum við Flamini. Það hefur ekki fengist staðfest, eina sem stjórinn vill hafa eftir sér er að Flamini sé hjá þeim við æfingar.
Wenger: Vil einstaka leikmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2013 | 16:49
88% á kostnað okkar
Hver er ábyrgð þeirra sem lána? Afhverju eru lánveitendur enn að troða ábyrgð á foreldra eða ættingja lánþega? Var ekki löngu búið að breyta þessu í tíð Valgerðar Sverrisdóttur þáverandi viðskiptaráðherra? Ég man ekki betur. Eiga svo lánveitendur ekki að bera nema 12% hlut í þessari "lunacy"leiðréttingu?
Svo er enn verið að púkka upp á þessa 110% leið sem er aðeins fyrir kjána. Eins og erlendir sérfræðingar sögðu um þessa leið í Hörpu á ráðstefnu 2009. Orðið sem viðkomandi notaði var "lunacy". Fyrrverandi ríkisstjórn virðist ekki fjármálalæs fyrst hún er enn að halda henni að grandlausu fólki.
Það verður að finna aðrar leiðir fyrir þá sem skulda meira í sinni íbúð en verðmat hennar er. Lyklafrumvarp hlýtur að koma sterkt inn hér. Þó á ekki að leysa fjármálaslóða undan ábyrgð án afleiðinga.
Samkomulag um lánsveð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.4.2013 | 12:51
Frammistaða Samfylkingar
Samfylkingin hrósar sér af því að hún hafi komið verðbólgu úr 18,6% niður í 3,9%. Myndin Seðlabankans sýnir að verðbólgan var 3,4% þegar Samfylking og Sjálfstæðismenn tóku við í maí 2007.
Á erfitt með að sjá stöðugleikann
Samfylkingin segir líka "að halli ríkissjóðs hafi minnkað úr 216 milljörðum árið 2009 niður í 3,7 milljarða. Og það sé afrek." Þetta er rangt. Samkvæmt tölum frá fjármálaráðuneyti var hallinn rúmlega 40 milljarðar fyrir árið 2012. Sennilega er hann miklu meiri þar sem ríkið er hætt að greiða í lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna.
Samfylkingin segir: "Kraftmikil varðstaða um íslenska hagsmuni gagnvart erlendum kröfuhöfum skapar nú mikilvæg sóknarfæri til losunar fjármagnshafta" Ætli Samfylkingin sé að vísa til ICESAVE?
18.4.2013 | 03:16
Kosningaloforðin
Sjálfstæðismenn hafa sakað Framsókn um innantóm loforð. En hvernig eru þeirra eigin loforð?
Þeirra leið til að hjálpa heimilunum er á þessari síðu :
http://www.xd.is/malefnin/skuldavandi-heimilanna/
Þar taka þeir dæmi um fjölskyldu með 600þús. í heildarlaun á mánuði sem er að greiða af 20 millj. kr láni.
a) Ríkið veitir þeim allt að 40þ skattaafslátt á mánuði vegna greiðslna af láninu og fer sú upphæð beint í að greiða niður lánið. Bara í þessu gæti ríkið misst skattatekjur sem nema 480þús á ári.
b) Með sínu framlagi og atvinnurekenda greiða þau saman 4% í séreignasparnað (kr 24þús á mán.) Sú upphæð er einnig nýtt öll til að greiða niður lánið og gefur ríkið eftir skattalegar tekjur sínar (kr 9.600) af þessu. Alls missir ríkið af 115.800 kr á ári vegna þess.
Samtals missir ríkiskassinn af tæpum 600þús krónum á ári af skattalegum tekjum sínum aðeins vegna þessarar einu fjölskyldu.
Aðstoð Sjálfstæðismanna við heimilin, virðist því ganga út á að láta ríkið borga niður lánin. Ríkið fær minni skatta en hrægammarnir fá sitt.
Sjálfstæðismenn virðast sammála Framsókn um lyklalög.
Sjálfstæðisflokkur bætir við sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.4.2013 | 16:50
Betri með því að tala illa um aðra?
Syndir framsóknarmanna eru stórar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.4.2013 | 20:03
Aldeyjarfoss
Vilja selja Hrafnabjargavirkjun hf. | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.3.2013 | 16:10
aukalaun þingmanna?
Tómur fíflagangur á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |