19.6.2008 | 15:56
Borgarstjón sýnir dirfsku
Borgarstjórn er í afar óþægilegri stöðu að bakka út úr samningi við S10 ehf. Það er vont að koma svona fram við samningsaðila bæði með töfum á málinu auk skaða.
Mér sýnist borgarstjórn loksins vera að vakna upp við vondan draum, hún sér að skipulagsmálin eru í ólestri, hún vill gera borgina fallegri. Kannski sér hún fyrir sér hinn geysifallega kaupstað Stykkishólm, þar eru margar fallegar byggingar í gömlum stíl í fallegu umhverfi.
Ég tel að það sé ekki nóg að búa til nýtt borgarskipulag með öllu sem því fylgir. Í sumum borgum eru komnar alls kyns reglur sem eiga að stuðla að fegurri og manneskjulegri borg . T.d. að 5-10% af byggingakostnaði fari í að skreyta húsið eða umhverfi þess.
Ferkantaður
Kaup á byggingarétti ekki samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:58 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.